Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Birkilundur 39 - Flokkur 1,
Málsnúmer 2310006
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 30. fundur - 16.10.2023
Tekin er fyrir umsókn Gylfa Jónu Arnbjarnarsonar um viðbyggingu við Birkilund 39.
Sótt er um stækkun á norð-vestur horni hússins sem nemur innskoti sem er á húsinu í dag. Sumarhúsið er timburhús reist árið 2007.
Húsið verður eftir stækkun 110,1 m2. Húsið er grundað á steyptum sökklum og plötu. Þak hússins nær yfir fyrirhugaða stækkun.

Byggingarfulltrúi telur umsóknina vera í samræmi við 1. mgr. 44 gr. skipulagslaga hvað varðar landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar.
Í ljósi þess að þak hússins nær yfir fyrirhugaða stækkun, telur byggingarfulltrúi að stækkunin hafi engin grenndaráhrif.
Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum og samræmist aðalskipulagi.
Byggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.3.8 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.