Byggðasamlag sveitarfélaganna Eyja- og Miklaholtshrepps,
Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og
Stykkishólmsbæjar rekur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSS).
Hlutverk stofnunarinnar er að annast skólaþjónustu við grunn- og
leikskóla aðildarsveitarfélaganna ásamt því að annast alla
félagsþjónustuþætti og málefni barnaverndar á þjónustusvæðinu.
Stofnunin annast einnig rekstur málaflokks fatlaðs fólks og er í þeim málaflokki hluti Þjónustusvæði Vesturlands bs.
Stofnunin hefur aðsetur að Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ. Auk þess hafa
starfsmenn vinnuaðstöðu í að Borgarbraut 2 í Stykkishólmi, á
bæjarskrifstofunni í Grundarfjarðarbæ ásamt starfsaðstöðu í grunn- og
leikskólum svæðisins sem og öllum heilsugæslustöðvum þar sem
sálfræðiþjónusta FSS er veitt. Þá rekur FSS vinnustofu/dagþjónustu- og
hæfingarstöð fatlaðs fólks í Stykkishólmi og önnur slík er í uppsetningu
í Ólafsvík, Snæfellsbæ. Í undirbúningi er starfræksla íbúðarsambýlis,
búsetuþjónustu fatlaðs fólks á Snæfellsnesi.
Smellið hér til að fara inn á heimasíðu Félags- og skólaþjónustunnar