
Öskudagurinn í Stykkishólmi
Upp er runninn Öskudagur, sem jafnan er mikið tilhlökkunarefni barna víðsvegar um landið. Dagurinn verður með hefðbundnu sniði í Stykkishólmi.
Skertur skóladagur er í grunnskólanum og voru börn hvött til að mæta í búningum eða með andlitsmálningu í skólann. Skóladeginum lýkur sem hér segir:
- Unglingastig kl. 11:30
- Miðstig kl. 12:00
- Yngsta stig kl. 11:50
ÖSKUDAGSGANGA
Öskudagsgangan verður á sínum stað eins og vant er. Gengið verður frá Tónlistarskólanum kl. 14:00 og munu þeir Magnús Bæringsson, Kristjón Daðason og Hafþór Guðmundsson leiða gönguna.
Að göngu lokinni tekur við öskudagsskemmtun í íþróttamiðstöðinni fyrir börn frá leikskóla upp í 10. bekk. Tímanum verður skipt svona:
- 16:30-17:30 - Leikskóli og 1.-3.bekkur
- 17:30-18:30 - 4.-6.bekkur
- 18:30-19:30 - 7.-10.bekkur
Aðgangseyrir að skemmtuninni er 500 kr. á barn en þó að hámarki 1000 kr. á heimili.