31. ágúst 2010
Foreldrar og nemendur
Við notum hjólin bara til og frá skóla.
Skólalóðin er því miður ekki góður kostur fyrir hjólin en við ætlum að skoða aðra möguleika fyrir hjólreiðarfólk.
Krakkar munið að þið eigið að nota hjálma
skólastjóri
25. ágúst 2010
Viljum vekja athygli á að breytingar hafa verið gerðar á skóladagatalinu 2010-2011
í samráði við tónlistarskólann og leikskólann.
Skólastjóri
10. ágúst 2010
Grunnskólans í Stykkishólmi 2010
Skólasetning fer fram í grunnskólanum mánudaginn 23. ágúst klukkan 11 : 00
Fyrir nemendur 5. – 10.bekkjar
Skólasetning fyrir 1. - 4.bekk verður þriðjudaginn 24. ágúst
klukkan 11 : 00
Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennara í heimastofu og fá afhenta stundaskrá og aðrar upplýsingar. Gert er ráð fyrir 40 til 60 mínútna viðveru þennan dag.
Þriðjudaginn 24. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá 5. – 10. bekk.
Miðvikudaginn 25. ágúst hefst kennsla samkvæmt stundaskrá hjá 1. – 4. bekk.
Innkaupalista má nálgast hér á forsíðunni http://www.stykkisholmur.is/Files/Skra_0043455.pdf
Skólastjóri.
11. mars 2010
Vikuna 1-5. mars dvöldum við 8. bekkur og Magga Ebba í skóla og frístundabúðunum á Laugum. Þarf ekki að fara mörgum orðum um það að vikan var í alla staði frábær. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg, brjóstsykurgerð, kjarkur og þor, blaðamennska, galdrar og spádómar, félagsvist, GÖGL ( sirkustækni), gönguferðir, heimsókn á byggðasafnið, ferð á sauðfjárbúið að Stóra Vatnshorni, Erpsstaði og Eiríksstöðum svo eitthvað sé nefnt. Svo verður nú að minnast á kvöldóvissuferðina þar sem ansi margir komu heim með fölan vangann.
Krakkarnir voru í alla staði til fyrirmyndar svo vikan varð hálfgert húmæðraorlof fyrir mig. Krakkar takk fyrir skemmtilega viku.
PS. Albúm með 100 myndum er komið á MYNDASAFNIÐ
5. mars 2010
Í gær voru valdir þátttakendur 7. bekkjar í Stóru upplestrarkeppnina hér á Snæfellsnesi. Krakkarnir buðu foreldrum sínum og kennurum að hlusta á ljóðalestur og sögukafla og á milli atriða var boðið upp á léttar veitingar. Dómnefnd lagði svo mat sitt á lesarana og valdi þau Halldóru K. Lárusdóttur, Silju K. Davíðsdóttur og Viktor M. Alexandersson til þess að keppa fyrir hönd bekkjarins á lokahátíðinni sem verður í Grundarfirði í næstu viku.
